top of page

Ljósmyndir úr leiknu efni

L'ascesa
di Lorenzo 
Ljósmyndir úr mafíumyndbandi frá árinu  2015.
 
Í dimmu herbergi á veitingastað bíða Alberto og Lamberto taugaóstyrkir eftir foryngja sínum. 
"L'ascesa di Lorenzo" (eða "The Rise of Lorenzo" á ensku) er ítölsk stuttmynd frá okkur í Flying Bus! Myndin gerist á undan fyrri stuttmyndinni "Ítalskt Kaffi" og fjallar um misheppnaða mafíósann Lorenzo og hvernig hann ætlar sér að hrifsa völdin af Don Vito og Don Altobello.
 
Rauð Jól 
Ljósmyndir úr jólamyndbandi frá árinu  2014.
 
Til eru þeir sveinar sem eru lítt þekktir. Einn þeirra sveina er jólasveinninn Froðusleikir. Myndbandið reynir með bestu getu að segja frá raunar sögu hans og útskýra hvers vegna fáir þekkja til hans. Við hittum hann þegar hann er á leið til byggðar á fund við sérstakan mann er reynir að rýna í misfarir sveinsins. En ekki er allt sem sýnist og óvænt uppákoma setur strik í reikninginn.
 
Drakúla

Ljósmyndir úr myndbandinu Drakúla frá árinu 2014.

 

"Drakúla" er gamansöm paródía af kvikmyndinni "Dracula" frá árinu 1931 í leikstjórn Tod Browning með hinum goðsagnakennda Bela Lugosi í aðalhlutverki Drakúla. Stuttmyndin er lauslega byggð á bókinni "Drakúla" eftir Bram Stoker og nokkrum persónum er sleppt úr bókinni eins og t.d. Minu, Lucy og Dr. Seward. Við ákváðum að nota enga tónlist undir myndbandið sjálft (að undanskyldu byrjunar kredit atriðinu) til að vitna enn fremur í upprunalegu kvikmyndina frá 1931.

El Desierto Español

Ljósmyndir úr myndbandinu El Desierto Español eða Spænskir Sandar upp á íslensku. Myndbandið er frá árinu 2014.

 

Klassísk barátta góðs og ills... á spænsku.

Ítalskt Kaffi

Ljósmyndir úr myndbandinu Italian Coffee eða Ítalskt Kaffi á íslensku. Myndbandið er frá árinu 2014.

 

Kaffisopinn er rándýr.

Boltaland

Ljósmyndir úr myndbandinu Boltaland. Þar sem þríeykið mætir brjálæðri fótboltabullu. Myndbandið er frá árinu 2014.

 

Hittir þetta beint í mark?

Snjókorn Falla

Ljósmyndir úr myndbandinu Snjókorn Falla. Jólamyndbandið árið 2014.

 

Snjókorn eru ekki það eina sem fellur.

Rautt Ljós

Ljósmyndir úr myndbandinu Rautt Ljós. Myndbandið er frá árinu 2014.

 

Hver kannast ekki að við að vera fastur á rauðu ljósi?

bottom of page